Síðast uppfært: 3. október 2026
1. Seljandi
The Arctic Marketplace – rekið af Sindra Má Bergmann Tryggvasyni (einstaklingsrekstur)
- Kennitala: 151195-3349
- VSK-númer: 162990
- Heimilisfang og starfsstöð: Skógartröð 7, 600 Akureyri, Ísland
- Sími: +354 888 7299
- Netfang: info@arctic-market.com
- Vefur: arctic-market.com
Þessir skilmálar gilda um kaup á vörum í vefversluninni arctic-market.com. Kaflar 1–12 gilda um kaup neytenda. Kafli 13 gildir um verktakaþjónustu og kafli 14 um fyrirtækjavörur sem seldar eru samkvæmt tilboði.
Um kaup neytenda gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga, lög nr. 48/2003 um neytendakaup og lög nr. 30/2002 um rafræn viðskipti. Ekkert í þessum skilmálum skerðir þau réttindi sem neytendur eiga samkvæmt lögum.
2. Vörur í versluninni
Í versluninni eru fjórar tegundir vara. Á hverri vörusíðu kemur fram hvaða tegund um er að ræða:
- Framleitt eftir pöntun (print-on-demand): Varan er framleidd sérstaklega eftir pöntun hjá samstarfsaðila okkar í prentþjónustu og send beint til þín.
- Sérmerktar vörur („með þinni hönnun“): Vörur sem eru framleiddar með þínu nafni, texta, mynd, merki eða hönnun, t.d. fánar, skipsfánar með nafni báts, plaköt og bolir með þinni hönnun. Eftir pöntun sendir þú okkur hönnunina eða upplýsingarnar og við sendum þér tillögu til samþykktar áður en framleiðsla hefst.
- Á lager: Vörur sem eru til hjá okkur á Akureyri.
- Forsala og innflutningur: Vörur sem eru á leið til landsins. Áætlaður komutími kemur fram á vörusíðu.
3. Verð
- Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt.
- Verð innihalda öll opinber gjöld, líka vegna vara sem eru framleiddar erlendis og sendar til Íslands (sjá 7. kafla).
- Sendingarkostnaður bætist við vöruverð og kemur fram í körfu áður en þú staðfestir pöntun. Sjá síðuna Sendingar.
- Verð og vöruframboð geta breyst, en verðið sem gilti þegar þú pantaðir stendur.
- Ef augljós villa er í verði látum við þig vita áður en pöntunin er afgreidd. Þú getur þá staðfest pöntunina á réttu verði eða hætt við og fengið greiðsluna endurgreidda að fullu.
4. Greiðsla
Greitt er á öruggri, hýstri greiðslusíðu greiðsluþjónustunnar með greiðslukorti (Visa eða Mastercard), Apple Pay eða Google Pay. Greitt er í íslenskum krónum.
Kortaupplýsingar slærð þú inn hjá greiðsluþjónustunnar. Þær fara hvorki um vef The Arctic Marketplace né eru geymdar þar og við sjáum aldrei kortanúmerið þitt.
5. Svona gengur pöntun fyrir sig
- Þú velur vöru, stærð og magn og setur hana í körfu.
- Í körfunni getur þú yfirfarið pöntunina og leiðrétt magn eða stærð. Í greiðsluferlinu slærð þú inn nafn, netfang, síma og afhendingarstað og getur leiðrétt þær upplýsingar áður en þú pantar.
- Þú velur sendingarmáta og sérð heildarverð með sendingarkostnaði.
- Þú hakar við að þú samþykkir skilmála, skilastefnu og persónuverndarstefnu. Ef í pöntuninni er sérmerkt vara staðfestir þú líka að á henni er ekki 14 daga skilaréttur (sjá 9. kafla).
- Þú smellir á hnappinn „Panta með greiðsluskyldu“ og ert send(ur) á greiðslusíðu greiðsluþjónustunnar.
- Þegar greiðsla hefur tekist færðu staðfestingu á pöntun í tölvupósti. Samningur um kaupin kemst á við þá staðfestingu.
Við varðveitum pöntunina og staðfestinguna. Ef þú ert með notandaaðgang sérðu pantanir þínar undir „Aðgangurinn minn“. Þú getur vistað eða prentað út þessa skilmála hvenær sem er.
Samningurinn er gerður á íslensku. Vefurinn er einnig birtur á ensku, pólsku, þýsku, dönsku, norsku, sænsku, frönsku og spænsku. Þýðingarnar eru til upplýsinga og íslenski textinn gildir ef ósamræmi kemur upp.
6. Afhendingartími
- Framleitt eftir pöntun (print-on-demand): Yfirleitt 7–15 virkir dagar frá pöntun: framleiðsla 2–5 virkir dagar og sending 5–10 virkir dagar.
- Sérmerktar vörur: Framleiðsla hefst þegar þú hefur samþykkt tillöguna. Afhending tekur síðan yfirleitt 7–15 virka daga.
- Á lager: Sendar frá Akureyri innan 1–2 virkra daga og yfirleitt afhentar innan 2–5 virkra daga.
- Forsala og innflutningur: Afhentar þegar varan er komin til landsins. Áætlaður komutími kemur fram á vörusíðu og við látum þig vita þegar varan er send.
Ef afhending dregst getur þú krafist afhendingar eða, ef drátturinn er verulegur, rift kaupunum og fengið fulla endurgreiðslu samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup.
7. Sendingar, gjöld og áhætta
- Vefverslunin sendir eingöngu innan Íslands. Sendingar til útlanda eru aðeins samkvæmt sérstöku samkomulagi.
- Vörur sem eru framleiddar eftir pöntun eru oftast framleiddar í Evrópu, en stundum í Bretlandi eða Bandaríkjunum. Vörur sem sendar eru til Íslands erlendis frá eru innfluttar. Öll gjöld eru innifalin í verði, þar með talinn virðisaukaskattur við innflutning, tollar og tollmeðferðargjald flutningsaðila. Ef flutningsaðili krefur þig samt um slík gjöld endurgreiðum við þér þau að fullu gegn kvittun. Sendu kvittunina á info@arctic-market.com.
- Áhættan af vörunni flyst til þín þegar þú, eða einhver sem þú tilnefnir (annar en flutningsaðili), hefur tekið við henni. Týnist sending eða skemmist á leiðinni berum við ábyrgðina og sendum nýja vöru eða endurgreiðum.
- Nánar um sendingarmáta og verð á síðunni Sendingar.
8. Réttur til að falla frá kaupum (14 dagar)
Sem neytandi getur þú fallið frá kaupum innan 14 daga án þess að gefa upp ástæðu. Fresturinn byrjar daginn sem þú, eða einhver sem þú tilnefnir (annar en flutningsaðili), tekur við vörunni. Ef vörur úr sömu pöntun berast hver í sínu lagi byrjar fresturinn þegar síðasta varan berst.
Þú tilkynnir okkur með ótvíræðri yfirlýsingu, t.d. tölvupósti á info@arctic-market.com, áður en fresturinn rennur út. Þú mátt nota staðlaða eyðublaðið á síðunni Skil og endurgreiðslur, en það er ekki skylda.
Við endurgreiðum allar greiðslur sem við fengum frá þér, þ.m.t. upphaflegan sendingarkostnað (miðað við ódýrasta sendingarmáta sem í boði var). Endurgreitt er án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynning þín berst okkur, á sama greiðslumiðil og þú notaðir. Þú greiðir beinan kostnað af því að senda vöruna til baka, nema varan sé gölluð eða röng. Nánar á síðunni Skil og endurgreiðslur.
9. Undantekningar frá 14 daga réttinum
Sérmerktar vörur. Samkvæmt c-lið 18. gr. laga nr. 16/2016 gildir rétturinn til að falla frá kaupum ekki um vörur sem eru framleiddar samkvæmt forskrift þinni eða bera skýrt auðkenni þitt. Í versluninni á þetta við um vörur sem eru framleiddar með nafni, texta, mynd, merki (lógói) eða hönnun sem þú leggur til, t.d. fána með þinni hönnun, skipsfána með nafni báts, plaköt með þinni mynd og bolir „með þinni hönnun“ eða með þínu merki. Á vörusíðu slíkra vara stendur „Sérmerkt vara – enginn 14 daga skilaréttur“ og þú staðfestir það sérstaklega áður en þú pantar.
Vörur sem eru prentaðar eftir pöntun með okkar eigin hönnun, í þeim stærðum og litum sem boðið er upp á, teljast ekki sérmerktar. Um þær gildir 14 daga rétturinn eins og um aðrar vörur.
Innsigluð matvara. Rétturinn gildir ekki um matvöru í innsigluðum umbúðum (t.d. myntur) ef innsiglið hefur verið rofið eftir afhendingu, þar sem ekki er hægt að skila henni af hreinlætisástæðum (e-liður 18. gr. laga nr. 16/2016).
Undantekningarnar hafa engin áhrif á rétt þinn vegna galla. Ef sérmerkt vara er gölluð, röng eða skemmd við afhendingu bætum við úr því samkvæmt 10. kafla og lögum nr. 48/2003 um neytendakaup. Það á líka við ef framleidd vara víkur frá þeirri tillögu sem þú samþykktir.
10. Gallar
Ef vara er gölluð átt þú rétt á úrbótum samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup: viðgerð, nýrri vöru, afslætti eða riftun kaupanna og endurgreiðslu, og eftir atvikum skaðabótum.
- Láttu okkur vita án ástæðulauss dráttar eftir að þú verður gallans var. Frestur til að kvarta er þó aldrei styttri en tveir mánuðir frá því að þú varðst hans var.
- Þú getur borið galla fyrir þig í tvö ár frá því að þú tókst við vörunni, eða í fimm ár ef vörunni er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist.
- Við berum ábyrgð gagnvart þér sem seljandi, líka þegar vara er framleidd og send af samstarfsaðila okkar. Þú þarft ekki að snúa þér til annarra.
- Sendu okkur pöntunarnúmer, lýsingu á gallanum og mynd ef hægt er á info@arctic-market.com. Við greiðum allan sendingarkostnað vegna gallaðrar eða rangrar vöru.
11. Persónuvernd og vafrakökur
Við meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðina (ESB) 2016/679. Sjá síðuna Persónuvernd og vafrakökur.
12. Ágreiningur, lög og varnarþing
Um viðskipti í versluninni gilda íslensk lög. Ef upp kemur ágreiningur reynum við fyrst að leysa hann í sátt. Hafðu samband á info@arctic-market.com eða í síma +354 888 7299.
Neytendur geta lagt mál fyrir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa (sjá island.is/v/kaerunefnd-voru-og-thjonustukaupa). The Arctic Marketplace hlítir úrskurðum nefndarinnar.
Mál sem ekki tekst að leysa með öðrum hætti skal reka fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra, nema lög mæli fyrir um annað.
Við getum breytt skilmálunum. Um hverja pöntun gilda þeir skilmálar sem voru birtir þegar pöntunin var gerð.
13. Verktakaþjónusta
Verktakaþjónusta (skipstjórn, vélgæsla, vinnuvélavinna, drónaskoðun og innleiðing vefforrita) er ekki seld í vefversluninni. Hún er eingöngu veitt samkvæmt tilboði. Um verð, umfang, tímasetningu og greiðslu fer eftir samþykktu tilboði hverju sinni.
14. Fyrirtækjavörur og tilboð (viðskipti milli fyrirtækja)
14.1 Gildissvið. Þessi kafli gildir þegar lögaðili eða einstaklingur í atvinnurekstri kaupir merktar vörur, fatapakka eða innfluttar fyrirtækjavörur samkvæmt tilboði. Um slík kaup gilda lög nr. 50/2000 um lausafjárkaup, með þeim frávikum sem hér koma fram. Lög nr. 16/2016 og nr. 48/2003 gilda ekki um þessi kaup og enginn réttur er til að falla frá kaupum (enginn 14 daga skilaréttur). Ef ósamræmi er milli þessa kafla og samþykkts tilboðs gildir tilboðið.
14.2 Tilboð og verð. Tilboð gildir í 30 daga frá dagsetningu þess, nema annað sé tekið fram. Verð á vörusíðum fyrirtækjavara eru viðmiðunarverð („frá-verð“). Endanlegt verð, lágmarksmagn, merking og hvað er innifalið (t.d. sending til Íslands og aðflutningsgjöld) kemur fram í tilboðinu. Samningur kemst á þegar kaupandi samþykkir tilboðið skriflega (t.d. í tölvupósti) og innborgun hefur borist.
14.3 Próförk. Áður en framleiðsla hefst sendum við próförk (mockup). Framleiðsla hefst ekki fyrr en kaupandi hefur samþykkt hana skriflega. Kaupandi ber ábyrgð á að yfirfara stafsetningu, liti, stærð og staðsetningu merkis. Við berum ekki ábyrgð á villum sem koma fram í samþykktri próförk. Breytingar eftir samþykki geta haft áhrif á verð og afhendingartíma.
14.4 Greiðsla. Kaupandi greiðir 50% af heildarverði sem innborgun við pöntun og eftirstöðvar fyrir afhendingu, nema um annað sé samið skriflega. Greitt er með greiðsluhlekk frá Teya. Af vanskilum reiknast dráttarvextir samkvæmt lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Seljandi á vöruna þar til hún hefur verið greidd að fullu.
14.5 Framleiðslufrávik. Í sérframleiðslu getur afhent magn vikið allt að ±5% frá pöntuðu magni og er þá reikningsfært samkvæmt afhentu magni. Litir á skjá og í próförk geta vikið frá prentuðum litum og efnislitum. Minni háttar frávik í lit, stærð og staðsetningu merkingar, sem eru venjuleg í slíkri framleiðslu, teljast ekki galli.
14.6 Afhending. Afhending er samkvæmt samkomulagi og kemur fram í tilboði, t.d. sótt til Eimskips eða send með þeim flutningsaðila sem birgir býður hverju sinni. Afhendingartími í tilboði er áætlaður og miðast við samþykki prófarkar og móttöku innborgunar. Seljandi ber ekki ábyrgð á töfum sem stafa af atvikum sem hann ræður ekki við, t.d. töfum hjá framleiðendum, flutningsaðilum eða í tollafgreiðslu (force majeure). Seljandi lætur kaupanda vita án tafar ef afhending dregst.
14.7 Skoðun og kvörtun. Kaupandi skal skoða vöruna strax við afhendingu. Kvartanir vegna galla, rangs magns eða rangrar vöru skal senda skriflega á info@arctic-market.com innan 8 daga frá afhendingu, með myndum. Kvartanir vegna leyndra galla, sem ekki var hægt að sjá við venjulega skoðun, skal senda án ástæðulauss dráttar eftir að gallans verður vart. Seljandi á rétt á að bæta úr galla með endurprentun eða nýrri afhendingu áður en kaupandi getur krafist afsláttar eða riftunar.
14.8 Takmörkun ábyrgðar. Ábyrgð seljanda vegna hverrar pöntunar takmarkast við kaupverð hennar. Seljandi ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni eða afleiddu tjóni, svo sem rekstrartapi eða töpuðum hagnaði. Þessar takmarkanir gilda ekki ef tjón stafar af ásetningi eða stórfelldu gáleysi seljanda.
14.9 Merki, hönnun og réttindi. Kaupandi ábyrgist að hann eigi, eða hafi heimild til að nota, öll merki (lógó), vörumerki, texta, myndir og aðra hönnun sem hann leggur til, og að framleiðsla samkvæmt þeim brjóti ekki gegn réttindum þriðja aðila. Kaupandi heldur seljanda skaðlausum af kröfum þriðja aðila og kostnaði sem af slíku hlýst. Seljandi getur hafnað efni sem hann telur brjóta gegn lögum eða réttindum annarra. Kaupandi heldur öllum réttindum að eigin merkjum og seljandi notar þau eingöngu til að afgreiða pöntunina.
14.10 Lög og varnarþing. Um viðskiptin gilda íslensk lög. Mál skal reka fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra.
Summary in English
The Arctic Marketplace is operated by Sindri Már Bergmann Tryggvason (sole proprietor), reg. no. (kt.) 151195-3349, VAT no. 162990, Skógartröð 7, 600 Akureyri, Iceland, tel. +354 888 7299, info@arctic-market.com. The shop sells four kinds of goods: print-on-demand items made to order by our production partner (typically 7–15 working days), personalised items made with the customer’s own name, text, logo or design (production starts after the customer approves a proposal), in-stock items shipped from Akureyri (2–5 working days), and pre-sale/import items (estimated arrival shown on the product page). Prices are in ISK and include VAT and all public charges. If a carrier still charges import VAT, duties or a customs fee, we refund it against a receipt. Payment is made on greiðsluþjónustunnar hosted payment page (Visa, Mastercard, Apple Pay, Google Pay); we never see or store card numbers. We ship within Iceland only. Consumers may withdraw within 14 days of receipt. Personalised goods are excluded, and so is sealed food once opened; standard print-on-demand items are not excluded. Rights for defective goods under Act no. 48/2003 always apply. Disputes can be referred to the Icelandic Complaints Committee for Goods and Services, whose rulings we follow. Contractor services are provided by quote only. Section 14 sets out B2B quote terms (Sale of Goods Act no. 50/2000; no right of withdrawal; 30-day quotes; proof approval; 50% deposit via greiðsluþjónustunnar payment link; delivery by agreement as stated in the quote; ±5% quantity tolerance; 8-day complaint period; liability capped at the order price; customer warrants rights to supplied logos). The Icelandic text prevails.