Síðast uppfært: 3. október 2026
Hér er lýst hvernig þú skilar vöru og færð endurgreitt hjá The Arctic Marketplace (rekið af Sindra Má Bergmann Tryggvasyni, einstaklingsrekstur, kt. 151195-3349). Reglurnar byggja á lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga og lögum nr. 48/2003 um neytendakaup og gilda um kaup neytenda.
14 daga réttur til að falla frá kaupum
Þú hefur rétt til að falla frá kaupum innan 14 daga án þess að tilgreina nokkra ástæðu.
Fresturinn rennur út 14 dögum eftir þann dag sem þú, eða þriðji aðili sem þú tilnefnir (annar en flutningsaðili), tekur vöruna í vörslu þína. Ef þú pantaðir margar vörur í einni pöntun og þær berast hver í sínu lagi rennur fresturinn út 14 dögum eftir að þú tekur síðustu vöruna í vörslu þína.
Til að nýta réttinn þarft þú að tilkynna okkur (The Arctic Marketplace, Skógartröð 7, 600 Akureyri, info@arctic-market.com, sími +354 888 7299) ákvörðun þína með ótvíræðri yfirlýsingu, t.d. tölvupósti eða bréfi. Nota má staðlaða eyðublaðið hér að neðan, en það er ekki skylda. Til að fresturinn teljist virtur nægir að senda tilkynninguna áður en hann rennur út. Við staðfestum móttöku tilkynningar í tölvupósti.
Svona skilar þú vöru
- Sendu tilkynningu á info@arctic-market.com innan 14 daga frá afhendingu, með pöntunarnúmeri og upplýsingum um hvaða vöru þú vilt skila.
- Sendu vöruna til baka eigi síðar en 14 dögum eftir að þú sendir tilkynninguna, á:
The Arctic Marketplace, Skógartröð 7, 600 Akureyri.
Fresturinn telst virtur ef þú sendir vöruna áður en 14 dagar eru liðnir. Vörur á aldrei að senda til framleiðsluaðila eða til útlanda. - Þú greiðir beinan kostnað af því að senda vöruna til baka, nema varan sé gölluð eða við höfum sent ranga vöru. Vörum er skilað með Póstinum og kostnaðurinn fer eftir verðskrá Póstsins. Við mælum með rekjanlegri sendingu.
- Þú mátt skoða vöruna og máta eins og í verslun. Ef verðgildi hennar rýrnar vegna meðferðar umfram það sem þarf til að kanna eiginleika hennar og virkni getur þú borið ábyrgð á þeirri rýrnun, og hún getur komið til frádráttar á endurgreiðslu. Við látum þig vita fyrir fram ef við teljum að svo sé.
Endurgreiðsla
- Við endurgreiðum allar greiðslur sem við fengum frá þér, þ.m.t. upphaflegan sendingarkostnað. Ef þú valdir dýrari sendingarmáta en þann ódýrasta sem í boði var endurgreiðum við ekki mismuninn.
- Endurgreitt er án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir að okkur berst tilkynning um að þú fallir frá kaupunum.
- Endurgreitt er á sama greiðslukort og notað var við kaupin, líka þegar greitt var með Apple Pay eða Google Pay, í gegnum færsluhirðinn Teya, nema þú samþykkir annað sérstaklega. Þú berð engan kostnað af endurgreiðslunni. Það getur tekið nokkra daga fyrir endurgreiðsluna að birtast á kortayfirliti, eftir því hvaða banki gaf kortið út.
- Við megum halda endurgreiðslunni eftir þar til varan hefur borist okkur eða þú hefur sýnt fram á að hún hafi verið send, hvort sem gerist fyrr.
Vörur sem ekki er hægt að skila samkvæmt 14 daga reglunni
- Sérmerktar vörur: vörur sem eru framleiddar samkvæmt forskrift þinni eða bera skýrt auðkenni þitt (c-liður 18. gr. laga nr. 16/2016). Í versluninni eru það vörur sem framleiddar eru með nafni, texta, mynd, merki (lógói) eða hönnun sem þú leggur til, t.d. fánar með þinni hönnun, skipsfánar með nafni báts, plaköt með þinni mynd og bolir „með þinni hönnun“ eða með þínu merki. Þessar vörur eru merktar „Sérmerkt vara – enginn 14 daga skilaréttur“ á vörusíðu og þú staðfestir það áður en þú pantar.
- Innsigluð matvara (t.d. myntur) ef innsiglið hefur verið rofið eftir afhendingu (e-liður 18. gr. laga nr. 16/2016).
- Fyrirtækjavörur samkvæmt tilboði og önnur kaup í atvinnuskyni. Rétturinn til að falla frá kaupum gildir aðeins um kaup neytenda. Um kaup fyrirtækja gildir 14. kafli skilmálanna.
Almennar vörur úr versluninni sem eru prentaðar eftir pöntun (print-on-demand) með okkar eigin hönnun, í þeim stærðum og litum sem boðið er upp á, falla undir 14 daga skilaréttinn.
Gölluð, röng eða skemmd vara
Ef vara er gölluð, skemmd við afhendingu eða þú fékkst ranga vöru skaltu hafa samband sem fyrst á info@arctic-market.com eða í síma +354 888 7299, með pöntunarnúmeri og mynd ef hægt er. Við bætum úr því þér að kostnaðarlausu með viðgerð, nýrri vöru, afslætti eða riftun og endurgreiðslu, í samræmi við lög nr. 48/2003 um neytendakaup. Við greiðum allan sendingarkostnað í þessum tilvikum.
Þetta gildir líka um sérmerktar vörur, þar á meðal ef framleidd vara víkur frá þeirri tillögu sem þú samþykktir. Undanþágan frá 14 daga reglunni hefur engin áhrif á rétt þinn vegna galla.
Láttu okkur vita án ástæðulauss dráttar eftir að þú verður gallans var. Frestur til að kvarta er þó aldrei styttri en tveir mánuðir frá því að þú varðst hans var. Þú getur borið galla fyrir þig í tvö ár frá afhendingu, eða fimm ár ef vörunni er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist.
Staðlað eyðublað með yfirlýsingu um að fallið sé frá samningi
(fylltu út og sendu seljanda þessa yfirlýsingu ef þú óskar eftir að falla frá samningnum. Eyðublaðið er samkvæmt viðauka II við reglugerð nr. 435/2016, sbr. reglugerð nr. 423/2021.)
- Til: The Arctic Marketplace – Sindri Már Bergmann Tryggvason, Skógartröð 7, 600 Akureyri, Ísland, info@arctic-market.com
- Ég/Við (*) tilkynni/tilkynnum (*) hér með að ég/við (*) óska/óskum (*) eftir að falla frá samningi mínum/okkar (*) um sölu á eftirfarandi vöru: …
- Sem voru pantaðar hinn (*) / mótteknar hinn (*): …
- Pöntunarnúmer (valfrjálst): …
- Nafn neytanda/neytenda: …
- Heimilisfang neytanda/neytenda: …
- Undirritun neytanda/neytenda (einungis ef þetta eyðublað er á pappírsformi): …
- Dagsetning: …
(*) Eyðið eftir því sem við á.
Summary in English
Consumers may withdraw from a purchase within 14 days of receiving the goods (or the last item of a split delivery) without giving a reason. To do so, notify us by e-mail (info@arctic-market.com) or letter. The official standard withdrawal form may be used but is optional. Goods must be returned within 14 days of the notice to The Arctic Marketplace, Skógartröð 7, 600 Akureyri, Iceland. Returns are sent with Pósturinn; the customer pays return shipping unless the item is defective or wrong. We refund all payments, including the original standard shipping, within 14 days of receiving the notice, to the original card (also for Apple Pay / Google Pay) via Teya, and may wait until the goods are back or proof of dispatch is shown. Personalised goods or goods made to the customer’s specifications (e.g. flags, boat-name flags, posters and shirts with the customer’s own design or logo), sealed food once opened, and quote-based company products are excluded from the right of withdrawal. Standard print-on-demand items are not excluded. Defective, damaged or wrong items, including personalised ones, are always remedied free of charge under Act no. 48/2003.