Síðast uppfært: 3. október 2026
Hér kemur fram hvernig The Arctic Marketplace safnar og notar persónuupplýsingar á arctic-market.com. Stefnan byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, almennu persónuverndarreglugerðinni (ESB) 2016/679 (GDPR) og, að því er varðar vafrakökur og markaðspóst í tölvupósti, lögum nr. 70/2022 um fjarskipti.
1. Ábyrgðaraðili
Ábyrgðaraðili vinnslunnar er Sindri Már Bergmann Tryggvason, kt. 151195-3349, sem rekur The Arctic Marketplace (einstaklingsrekstur).
Skógartröð 7, 600 Akureyri, Ísland · sími +354 888 7299 · info@arctic-market.com
Fyrirspurnir og beiðnir um persónuvernd skal senda á info@arctic-market.com.
2. Hvaða upplýsingum er safnað, í hvaða tilgangi og á hvaða grundvelli
| Upplýsingar | Tilgangur | Lagagrundvöllur (GDPR) |
|---|---|---|
| Nafn, netfang, símanúmer, afhendingarheimilisfang og innihald pöntunar | Afgreiða, framleiða og senda pöntun, senda staðfestingu og veita þjónustu | Samningur – b-liður 1. mgr. 6. gr. |
| Hönnun, texti, myndir eða merki sem þú sendir okkur vegna sérmerktrar vöru | Útbúa tillögu og framleiða vöruna | Samningur – b-liður 1. mgr. 6. gr. |
| Upplýsingar um greiðslu frá greiðsluþjónustunnar (fjárhæð, staða greiðslu og tilvísunarnúmer). Aldrei kortanúmer. | Staðfesta greiðslu, endurgreiða og færa bókhald | Samningur og lagaskylda – b- og c-liðir 1. mgr. 6. gr. |
| Reikningar og pöntunargögn | Uppfylla skyldur samkvæmt lögum nr. 145/1994 um bókhald og lögum nr. 50/1988 um virðisaukaskatt | Lagaskylda – c-liður 1. mgr. 6. gr. |
| Fyrirspurnir í gegnum form á vefnum (Hafa samband, Óska eftir tilboði, Verktaki): nafn, fyrirtæki, netfang, sími, skilaboð, staðsetning verks, tímafrestur og skrár sem þú hleður upp (t.d. merki, mockup, myndir) | Svara fyrirspurn og útbúa tilboð | Ráðstafanir að beiðni þinni áður en samningur er gerður – b-liður 1. mgr. 6. gr. |
| Upplýsingar vegna verktakaþjónustu samkvæmt tilboði (t.d. staðsetning verks og myndir eða myndskeið úr drónaskoðun) | Framkvæma verkið og afhenda verkkaupa niðurstöður | Samningur – b-liður 1. mgr. 6. gr. |
| Notandaaðgangur og VIP-aðild (nafn, netfang, dulkóðað lykilorð, pantanir og frátektir) | Innskráning, yfirlit pantana, forsala og frátektir | Samningur – b-liður 1. mgr. 6. gr. |
| Samskipti í tölvupósti og síma | Svara fyrirspurnum, kvörtunum og beiðnum um skil | Samningur og lögmætir hagsmunir – b- og f-liðir 1. mgr. 6. gr. |
| Skráning á póstlista (fréttabréf og tilboð): netfang, nafn ef þú gefur það upp, dagsetning og leið skráningar, staðfesting á samþykki og afskráning | Senda fréttabréf og tilboð í tölvupósti, sjá 3. kafla | Samþykki – a-liður 1. mgr. 6. gr. |
| Tæknilegar upplýsingar í annálum vefþjóns (IP-tala, tími, vafri, umbeðin slóð) | Rekstur og öryggi vefsins | Lögmætir hagsmunir – f-liður 1. mgr. 6. gr. |
Án nafns, netfangs og afhendingarheimilisfangs getum við ekki afgreitt pöntun. Engin sjálfvirk ákvarðanataka eða gerð persónusniða fer fram. Við seljum aldrei persónuupplýsingar.
3. Fréttabréf og markaðspóstur
Við sendum fréttabréf og tilboð í tölvupósti með póstkerfinu Brevo (sjá 5. kafla). Þú færð slíkan póst aðeins ef þú hefur skráð þig:
- Þú skráðir þig á póstlistann. Þú skráir netfangið þitt í skráningarform á vefnum eða við pöntun og hakar sjálf/ur í reit um samþykki. Reiturinn er aldrei forhakaður. Eftir skráningu sendum við þér staðfestingarpóst og þú ferð ekki á listann fyrr en þú smellir á staðfestingarhlekkinn í honum. Grundvöllur: samþykki samkvæmt a-lið 1. mgr. 6. gr. GDPR og 1. mgr. 94. gr. laga nr. 70/2022 um fjarskipti.
Netföng úr fyrirspurnum, tilboðsbeiðnum og verktakaformi fara ekki á póstlistann nema þú skráir þig sérstaklega.
Afskráning. Í hverjum pósti er hlekkur til að afskrá sig og þar koma líka fram nafn og heimilisfang sendanda. Afskráning er jafn auðveld og skráning: einn smellur dugar, og þú getur einnig sent beiðni á info@arctic-market.com. Afskráningin tekur gildi strax. Afturköllun samþykkis hefur ekki áhrif á lögmæti vinnslu fram að því.
Opnanir og smellir. Brevo telur hve margir opna póstinn og smella á tengla í honum, en sú talning er nafnlaus og ekki tengd einstökum viðtakendum. Tenglar í póstinum fara í gegnum vefslóð Brevo áður en þú kemur á áfangastaðinn.
4. Kortaupplýsingar
Kortaupplýsingar eru aldrei slegnar inn, unnar eða geymdar á vef The Arctic Marketplace og við sjáum aldrei kortanúmerið þitt. Greitt er á hýstri greiðslusíðu greiðsluþjónustunnar, sem vinnur kortaupplýsingar samkvæmt eigin persónuverndarstefnu. Við fáum aðeins upplýsingar um hvort greiðsla tókst ásamt tilvísunarnúmeri.
5. Viðtakendur og vinnsluaðilar
Við deilum persónuupplýsingum aðeins að því marki sem nauðsynlegt er:
| Viðtakandi | Hlutverk | Upplýsingar | Staðsetning og grundvöllur flutnings |
|---|---|---|---|
| Hostinger | Hýsing vefsins, gagnagrunns og tölvupósts (info@arctic-market.com) | Öll gögn sem vefurinn og tölvupósturinn geyma | Hostinger er með höfuðstöðvar innan EES (Litháen). Vinnsla samkvæmt vinnslusamningi (28. gr. GDPR). |
| greiðsluþjónustunnar, Katrínartúni 4, 105 Reykjavík | Færsluhirðing (Visa, Mastercard, Apple Pay, Google Pay) | Fjárhæð, pöntunarnúmer og þau gögn sem þú slærð inn á greiðslusíðu | Ísland (EES). greiðsluþjónustunnar vinnur kortaupplýsingar sem sjálfstæður ábyrgðaraðili. |
| Sendinblue SAS (Brevo), 9-17 rue Salneuve, 75017 París, Frakklandi | Útsending fréttabréfa og markaðspósts, skráningarform og umsýsla afskráninga | Netfang, nafn ef það er gefið upp, upplýsingar um skráningu, samþykki og afskráningu, og nafnlaus talning opnana og smella | Gögnin eru hýst innan ESB (Frakklandi og Belgíu). Vinnsla fer fram samkvæmt vinnslusamningi (28. gr. GDPR). Brevo notar undirvinnsluaðila utan EES, m.a. í Bandaríkjunum og á Indlandi, t.d. vegna efnisdreifingar og netöryggis, þjónustuvers og tækniaðstoðar. Slíkur flutningur byggir á stöðluðum samningsskilmálum framkvæmdastjórnar ESB (46. gr. GDPR) og, eftir atvikum, á gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (45. gr. GDPR). |
| Prentþjónusta og framleiðsluaðilar, m.a. utan EES | Framleiðsla og sending vara sem eru framleiddar eftir pöntun | Nafn, afhendingarheimilisfang, sími/netfang, innihald pöntunar og hönnunarskrár | Innan og utan EES. Flutningur út fyrir EES byggir á stöðluðum samningsskilmálum framkvæmdastjórnar ESB (46. gr. GDPR) eða, eftir atvikum, jafngildisákvörðun (45. gr. GDPR). |
| Pósturinn, og fyrir fyrirtækjapantanir sá flutningsaðili sem samið er um (t.d. Pósturinn eða flutningsaðili framleiðanda) | Afhending sendinga og tollafgreiðsla | Nafn, heimilisfang, sími og eftir atvikum netfang | Afhending á Íslandi. |
| Skatturinn | Skattskil | Bókhaldsgögn eftir því sem lög krefjast | Ísland. Lagaskylda. |
Vefverslunin keyrir á WordPress og WooCommerce á okkar vefþjóni hjá Hostinger.
6. Varðveislutími
| Gögn | Varðveislutími |
|---|---|
| Pöntunar- og bókhaldsgögn | 7 ár frá lokum viðkomandi reikningsárs (1. mgr. 20. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald) |
| Fyrirspurnir og tilboðsbeiðnir sem leiða ekki til viðskipta, ásamt skrám sem fylgdu | Allt að 24 mánuðir |
| Hönnun og merki vegna pantana | Allt að 24 mánuðir frá síðustu pöntun, nema þú óskir eftir eyðingu fyrr |
| Notandaaðgangur og VIP-aðild | Þar til þú eyðir aðganginum eða óskar eftir eyðingu |
| Tölvupóstsamskipti | Eins lengi og þörf er á vegna viðskiptanna, nema þau séu hluti bókhaldsgagna |
| Póstlisti (fréttabréf og markaðspóstur) | Þar til þú afskráir þig. Eftir afskráningu geymum við netfangið og upplýsingar um samþykki og afskráningu á bannlista í 24 mánuði, svo þú fáir ekki póst aftur og til að geta sýnt fram á samþykki. Að því loknu er þeim eytt. |
| Annálar vefþjóns | Í takmarkaðan tíma samkvæmt stillingum hýsingaraðila |
7. Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt (nema okkur beri lagaskylda til að varðveita þær, t.d. bókhaldsgögn), fá vinnslu takmarkaða, andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum og fá upplýsingar afhentar á tölvutæku formi. Þú getur hvenær sem er afturkallað samþykki og andmælt markaðspósti, og þá hættum við að senda þér hann (sjá 3. kafla).
Sendu beiðni á info@arctic-market.com. Við svörum innan mánaðar.
Ef þú telur að vinnsla brjóti gegn lögum getur þú sent kvörtun til Persónuverndar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík, postur@personuvernd.is, www.personuvernd.is.
8. Vafrakökur og vistun í vafra
Vefurinn notar eingöngu nauðsynlegar vafrakökur og vistun í vafra, þ.e. það sem þarf til að veita þá þjónustu sem þú biður um: innkaupakörfu, innskráningu, tungumálaval og forskoðun á eigin merki. Samkvæmt 2. mgr. 88. gr. laga nr. 70/2022 um fjarskipti þarf ekki samþykki fyrir slíkri vistun. Við notum engar greiningar-, markaðs- eða auglýsingakökur.
| Heiti | Tilgangur | Tegund | Gildistími |
|---|---|---|---|
wp_woocommerce_session_* | Tengir körfuna við heimsóknina þína | Nauðsynleg, fyrsta aðila | Allt að 2 dagar |
woocommerce_cart_hash, woocommerce_items_in_cart | Halda utan um innihald körfu | Nauðsynlegar, fyrsta aðila | Lota |
wordpress_logged_in_*, wordpress_sec_*, wordpress_test_cookie | Innskráning í notandaaðgang eða VIP-aðild | Nauðsynlegar, fyrsta aðila | Lota, eða allt að 14 dagar ef valið er „muna mig“ |
pll_language | Man hvaða tungumál þú valdir | Nauðsynleg, fyrsta aðila | Allt að 1 ár |
am_logo_v1, am_logo_adj_v1 (vistun í vafra, localStorage) | Geyma merki sem þú hleður upp og stillingar á því, til að sýna forskoðun á vörum. Merkið er aðeins geymt í þínum vafra þar til þú sendir fyrirspurn. | Nauðsynleg, fyrsta aðila | Þar til þú fjarlægir merkið eða hreinsar vafrann |
| Kökur greiðsluþjónustunnar á greiðslusíðu | Örugg greiðsla og varnir gegn svikum | Nauðsynlegar, þriðja aðila, samkvæmt persónuverndarstefnu greiðsluþjónustunnar | Samkvæmt stefnu greiðsluþjónustunnar |
Þú getur eytt eða lokað á vafrakökur í stillingum vafrans. Þá virka karfan, innskráning og greiðsluferlið hugsanlega ekki.
Ef við tökum einhvern tíma í notkun vafrakökur sem eru ekki nauðsynlegar munum við fyrst óska eftir samþykki þínu og uppfæra þessa stefnu.
9. Breytingar
Nýjasta útgáfa stefnunnar er alltaf birt á þessari síðu ásamt dagsetningu.
Summary in English
The controller is Sindri Már Bergmann Tryggvason, reg. no. 151195-3349, who operates The Arctic Marketplace (sole proprietor), Skógartröð 7, 600 Akureyri, Iceland, +354 888 7299, info@arctic-market.com. We process order data, design files for personalised items, payment status from greiðsluþjónustunnar, enquiries and uploads from the website forms (contact, quote, contractor), contractor-job data (e.g. drone inspection images), account/VIP membership data, e-mails, server logs and our mailing list. The legal bases are contract or pre-contract steps, legal obligation (bookkeeping, 7 years), legitimate interests (security) and consent (newsletter). Newsletter and offers are e-mailed via Brevo only if you signed up (on the website or at checkout) and ticked the consent box (not pre-ticked), with a confirmation e-mail before you are added. Enquiry, quote and contractor forms never add you to the list. Every e-mail has a one-click unsubscribe link and shows the sender’s name and address, and you can also unsubscribe by e-mailing us. After you unsubscribe, your address and consent/unsubscribe record are kept on a suppression list for 24 months and then deleted. Brevo counts opens and clicks anonymously, not per recipient. Card data is handled only by greiðsluþjónustunnar; we never see or store card numbers. Recipients: Hostinger (hosting and e-mail), greiðsluþjónustunnar (acquiring, independent controller), Sendinblue SAS (Brevo), 9-17 rue Salneuve, 75017 Paris, France (newsletter processor; data hosted in the EU; some sub-processors in the USA and India under the EU Standard Contractual Clauses and, where applicable, the EU-US Data Privacy Framework), print service providers and manufacturers (production and shipping, including outside the EEA under the EU Standard Contractual Clauses), Pósturinn (and, for business orders, the carrier agreed, e.g. Pósturinn), and the tax authority. Only strictly necessary cookies and browser storage are used (cart, login, language, logo preview, and greiðsluþjónustunnar payment page), so no consent banner is needed; consent will be asked if that ever changes. You may exercise your data-protection rights by e-mail and complain to Persónuvernd.