Pantanir og greiðslur
Í hvaða gjaldmiðli er verðið?
Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) með VSK. Greitt er með greiðslukorti, Apple Pay eða Google Pay á öruggri greiðslusíðu greiðsluþjónustunnar.
Bjóðið þið magnafslátt fyrir fyrirtæki?
Já. Pakkar og fyrirtækjavörur eru verðlagðar eftir magni. Sendu fyrirspurn og þú færð tilboð og greiðsluhlekk.
Hvað er print on demand?
Varan er framleidd eftir að þú pantar, hjá samstarfsaðila okkar, og send beint til þín. Þannig verður engin offramleiðsla.
Sendingar og skil
Hvað tekur sendingin langan tíma?
Lagervörur fara af stað innan 1–2 virkra daga (2–5 virkir dagar með Póstinum). Print-on-demand vörur eru framleiddar eftir pöntun: framleiðsla tekur yfirleitt 2–5 virka daga og sending 5–10 virka daga.
Get ég skilað vöru?
Já, þú hefur 14 daga skilarétt frá móttöku samkvæmt lögum nr. 16/2016. Sérmerktar eða sérsmíðaðar vörur eru undanskildar.
Hvaða stærð á ég að velja?
Sjáðu stærðartöfluna. Mældu flík sem passar vel og berðu saman.
Verktakaþjónusta
Hvar tekur þú að þér verk?
Aðallega á Norðurlandi og í höfnum við Eyjafjörð, en stærri verk um allt land eftir samkomulagi.
Hvernig fæ ég tilboð í verk?
Fylltu út fyrirspurnarformið á verktakasíðunni með lýsingu, staðsetningu og myndum ef þú átt. Ég svara yfirleitt innan 1–2 virkra daga.
Fannstu ekki svarið? Hafðu samband.